Verðbréfaleið

Fjárfestingarstefna Verðbréfaleiðar endurspeglar fjárfestingarstefnu sameignardeildar lífeyrissjóðsins. Hrein ávöxtun Verðbréfaleiðar á árinu 2022 var -3,5% sem svarar til -11,8% raunávöxtunar. Meðalraunávöxtun síðustu fimm ár er 5,0 % og 5,4% síðustu tíu ár. Líkt og í tilfelli sameignardeildar, sem lesa má um í kaflanum „Um eignasafn sameignardeildar“ var það einna helst eign í innlendum og erlendum hlutabréfum sem dró ávöxtun ársins niður.

árleg nafnávöxtun verðbréfaleiðar

Eignasamsetning Verðbréfaleiðar er sú sama og í sameignardeild. Eignasamsetning nær allra eignaflokka er nálægt fjárfestingarstefnu í árslok 2022.

eignasamsetning verðbréfaleiðar