Ákvæði um áhættustýringu
Þá koma einnig til skoðunar hér ákvæði um áhættustýringu lífeyrissjóða, sbr. gr. 35-a og gr. 36-e í lífeyrissjóðalögunum.
Um mótun stefnu um siðferðisleg viðmið og ábyrgar fjárfestingar
Við mótun stefnu um siðferðisleg viðmið í fjárfestingum og framkvæmd hennar er mikilvægt fyrir lífeyrissjóð að horfa til inntaks umboðsskyldu sinnar eins og henni er lýst hér að ofan. Þá þarf að hafa í huga almennar lagaskyldur, siðferðisleg viðmið, réttmætar væntingar og hagsmuni sjóðfélaga en sjóðfélagar eru langt frá því einsleitur hópur. Hafa verður í huga fjárhagslegan tilgang varðandi ávöxtun eignasafna sjóðsins og skoða önnur viðmið í því ljósi.
Það er almennt viðurkennt að beiting UFS greiningar og UFS aðferðafærði við fjárfestingaákvarðanir og umsýslu eignasafna hefur vaxandi þýðingu við eignastýringu, sbr. m.a. umfjöllun í kafla um ábyrgar fjárfestingar. Aukin áhersla er á að fyrirtæki, sem er fjárfest í, taki tillit til sjálfbærni í rekstri. Hér skiptir þróun innlendrar löggjafar, EES-réttar og aðrar alþjóðlegar skuldbindingar Íslands máli. Þá geta sjónarmið og upplýsingar vísindasamfélagsins og straumar og stefnur í þjóðfélaginu varðandi auknar áherslur á samfélagsábyrgð og sjálfbærni haft áhrif.
Varðandi lagareglur er m.a. vísað til framangreindra fimm vegvísa í 1. mgr. 36. gr. Lífeyrissjóðalaganna og ákvæða laga um ársreikninga, einkum gr. 66 og 66-d. Auk þess er vísað til ýmissa tilskipana í ESB-rétti Þær eru meðal annars:
- Tilskipun um starfstengda lífeyrissjóði nr. EU/2016/2341 (IORPs II: Institution for Occupational Retirement Provision).
- Tilskipun nr. EU/2017/828 um eigendahlutverk hluthafa, réttindi og skyldur með áherslu á langtímasýn (Shareholders Right Directive II).
- Reglugerð nr. EU/2019/2088 um skilgreiningarkerfi varðandi umhverfislega sjálfbæra starfsemi fyrirtækja (EU-Taxonomy).
- Reglugerð nr. EU/2019/2088 um upplýsingar um sjálfbærnitengda þætti í fjármálageiranum (SFDR: Sustainable Finance Disclosure Regulation).
- Væntanleg tilskipun ESB um sjálfbærniupplýsingagjöf fyrirtækja (CSRD Corporate Sustainability Reporting Directive) sem mun koma í stað gildandi tilskipunar um ófjárhagslegar upplýsingar nr. EU/2014/95 (NFRD: Non-Financial Reporting Directive) sem var innleidd með gr. 66-d í lögum um ársreikninga.
Nefndar tilskipanir og reglugerðir Evrópusambandsins falla undir gildissvið samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Þær hafa enn sem komið er ekki allar verið innleiddar í íslenskan rétt. Þá þarf að skoða sérstaklega hvort og með hvaða hætti tilskipanirnar varða starfsemi lífeyrissjóða beint. Þær eru nefndar hér því þær hafa verulega þýðingu fyrir inntak sjálfbærni í starfsemi stofnanafjárfesta og hafa þýðingu fyrir umræðu um ábyrgar fjárfestingar.
Hvað ýmsar alþjóðlegar skuldbindingar og stefnur varðar er m.a. vísað til Parísarsáttmálans frá 2015 um aðgerðir gegn hnattrænni hlýnun, til Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun frá 2015 og til þeirra sáttmála Sameinuðu þjóðanna sem UN Global Compact byggir á.
Um tengingu rekstrar, lífeyris og umsýslu eignasafna við sjálfbærni
Í samræmi við það sem fram kemur í þessum kafla leggur LV áherslu á umboð sitt og umboðsskyldu með tilliti til laga, stjórnvaldsfyrirmæla, réttarþróunar, viðskiptavenju og annarra gildara viðmiða. Í því sambandi er horft til hagsmuna sjóðfélaga og annarra haghafa og faglegra vinnubragða sem mikilvægs leiðarljóss. Til að styðja við framsýnan og traustan rekstur taka margþættar áherslur í rekstri mið af sjálfbærniviðmiðum, samanber m.a. umfjöllun í kafla um stefnumótandi áherslur, í kafla um viðskiptalíkan og skipurit og kafla um samfélagsábyrgð. Varðandi sjálfbærniáherslur í rekstri er m.a. vísað til umfjöllunar um viðskiptalíkan og skipurit og UFS þætti í rekstri í kafla um samfélagsábyrgð. Hvað lífeyri varðar er vísað til kafla um lífeyrisafurðir og sjálfbær fjármál lífeyrisþega.
Um eignasöfn, ábyrgar fjárfestingar og sjálfbærni
Hvað umsýslu eignasafna varðar er einkum vísað til umfjöllunar framar í kafla þessum sem og kafla um umsýslu eignasafna og sjálfbærni sem og stefnu LV um ábyrgar fjárfestingar.
Nokkur atriði ber að nefna sem skipta máli varðandi ábyrgar fjárfestingar:
- Beiting UFS greiningar í fjárfestingarferli og stýringu eignasafna er til viðbótar hefðbundinni fjármálagreiningu en kemur á engan hátt í stað hennar.
- Neikvæð skimun fjárfestingarkosta byggir að vissu leyti á vísun til tiltekinna gilda sem metin eru mikilvæg.
- Jákvæð skimun felur í sér val á fjárfestingarkostum (fyrirtæki eða geirar) sem eru bestir í sínum flokki varðandi viðmið tengd umhverfisþáttum, félagslegum þáttum og/eða stjórnarháttum.
Útilokun fjárfestingarkosta úr eignasöfnum byggir á tilteknum skilgreindum gildum. Nefna má vinnslu tiltekins jarðefnaeldsneytis, sem er metin sérstaklega skaðleg, framleiðslu tóbaks og umdeildra vopna (t.d. kjarnorkuvopna, klasasprengja, sýkla- og efnavopna og jarðsprengja). Þá má nefna fyrirtæki sem fara í starfsemi sinni gegn viðmiðum UN Global Compact sem vísar til mikilvægra alþjóðasáttmála varðandi mannréttindi, umhverfismál, vinnumarkað og aðgerðir gegn spillingu. Markmiðið í öllum tilvikum er að stuðla að góðri langtímaávöxtun eignasafna og skilvirkri áhættustýringu. Með virku eignahaldi er svo lögð áhersla á samtal við útgefendur fjármálgerninga og eftirfylgni áherslna LV varðandi efnislega þýðingarmikla UFS þætti.
Við þróun og framkvæmd stefnu um ábyrgar fjárfestingar er litið til aðgerðaráætlunar ESB frá árinu 2018 um fjármögnun sjálfbærs vaxtar (COM/2018/097: Action Plan – Financing Sustainable Growth), löggjafar ESB sem varðar sjálfbærni og fjármálamarkaði, sbr. hér að framan og er hluti af gildissviði EES samningsins. Einnig skipta máli upplýsingar um þróun mikilvægra þátta í umhverfismálum, m.a. á vettvangi IPCC – The Intergovernmental Panel on Climate Change. Þannig er leitast við að meta eftir því sem tök eru á langtímahagsmuni við umsýslu eignasafna LV með tilliti upplýsinga um þróun efnislega mikilvægra þátta sem varða umhverfismál og félagsleg mál. Hér er að nógu að taka og ljóst að LV þarf að treysta á samstarf og leiðsögn ýmissa aðila svo sem á fjármálamarkaði, hjá stjórnvöldum, löggjafanum og vísindasamfélaginu.